Gröfin
Hvar er í heimi hæli tryggt og hvíld og mæðufró? Hvar bærist aldrei hjarta hryggt? Hvar heilög drottnar ró?
Það er hin djúpa dauðra gröf, - þar dvínar sorg og stríð -, er sollin lífs fyrir handan höf er höfn svo trygg og blíð.
Þú kælir heita hjartans glóð og heiftar slökkur bál, Þú þaggar niður ástaróð og ekkert þekkir tál.
Þú læknar hjartans svöðusár og svæfir auga þreytt, þú þerrar burtu tregatár og trygga hvíld fær veitt.
Þú griðastaður mæðumanns, ó, myrka, þögla gröf! Þú ert hið eina hæli hans og himins náðargjöf.
Kristján Jónsson 1842-1869 Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa. |
|