K/Kælan Mikla/Ætli það sé óhollt að láta sig dreyma
Svífa svartir svanir sínum vængjum á yfir háar hæðir og hæðast að mér. -þeir spurðu mig, mín kæra, hvurslags vængi ég bæri á berum herðum mér. Þeir sögðu mér að fljúga. Svo ég flaug og sá þá aldrei aftur en ég heyrði þeirra hæðnis hlátur bergmála í björgunum sem voru það síðasta sem ég sá.
Þú þarft ekki spítt eða kókaín, elskan mín, reyktu mig, sleiktu mig, mölvaðu og snortaðu. Settu í skeið og bræddu mig og sprautaðu mér í þig og finndu hvað ég tek mikið pláss. Finndu fyrir sprengingunni inní þér, ástin mín, hvernig þú stækkar og líkaminn þolir ekki meir. Svo þú springur og jörðin er hringur, sem þú vefur þig utan um og lekur milli steinanna, fyrir aftan bar 11. Og þú faðmar alla jörðina og þú finnur loksins fyrir þessari hamingju. Þetta er það sem ég kalla gleði.
En ég ber þennan dóm, og ég lækka minn róm Og ég man fyrst þegar ég fæddist Ég er frumburður og einkabarn nýs hugmyndaheims Eins og kommúnismi er ég falleg hugsun en ég verð aldrei að raunveruleika.
Í almyrkvuðum hellum ég ríkjum ræð og drottna ég sé mig sjálfa rotna og í eigin svita og táraflóði sit ég bara og blotna. Ég nærist á þeim lífverum sem sína mér ekki lotningu hver elskar ekki sína eigin drottningu?
Í dauða djúpum dreka drunum drýp ég dögg. Í sárum mínum og syndaflóði flýt ég um. blóði borin brýt ég bein mín bráðum kemur sólin.
Ég veit að raunveruleikinn er þarna einhversstaðar. en ég kemst ekki nær og ég er búin að reyna.
Ætli það sé óhollt að láta sig dreyma?Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.