Alfaðir í Eden fann apa sem um greinar rann ætlaði að gera úr honum mann sem elskaði Guð og náungann.
Sat hann við með sveittar brár í sextán hundruð þúsund ár. Apinn reyndist þrjóskur, þrár þykkjukaldur og hyggjuflár.
Að hálfu leyti api enn eðlin geymir tvenn og þrenn. Lítil von hann lagist senn lengi er Guð að skapa menn.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.