Hún kom eins og draumur, konan með sjalið, og hlustaði í kyrrðinni á kvöldbylgjuhjalið. Hún brosti með sjalið um brjóstin vafið… En eg var blærinn, sem barst um hafið.
Eg var blærinn sem bærði sjalið, og veit, hvað bak við það brennur falið Eg var blærinn sem barst yfir eyna, og faðmaði að mér Feneyjameyna.
Og nú er hún horfin…. En nóttin er fögur Og segir hjartanu Helgisögur. Og enn syngur blærinn Og bylgjuhjalið Um hvítasta brjóstið Og svartasta sjalið.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.