Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg, við skulum tjalda í grænum berjamó. Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær, lindin þar niðar og birkihríslan grær.
Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær.
Dagperlur glitra um dalinn færist ró, draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg. Kveldrauðu skini á krækilyngið slær. Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær.
Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær.
Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.