Óðum steðjar að sá dagur, afmælið þitt kemur senn. Lítill drengur, ljós og fagur lífsins skilning öðlast senn. Vildi ég að alltaf yrðir við áhyggjunar laus sem nú en allt fer hér á eina veginn: Í átt til foldar mjakast þú.
Ég vildi geta verið hjá þér veslings barnið mitt. Umlukt þig með örmum mínum. Unir hver með sitt. Oft ég hugsa auðmjúkt til þín einkum, þegar húmar að. Eins þótt fari óravegu átt þú mér í hjarta stað.
Man ég munað slíkan, er morgunn rann með daglegt stress, að ljúfur drengur lagði á sig lítið ferðalag til þess að koma í holu hlýja, höfgum pabba sínum hjá. Kúra sig í kotið hálsa, kærleiksorðið þurfti fá.
Vilhjálmur VilhjálmssonTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.