Öldurót í hljóðri sál Þrautin þung umvafin sorgarsárum Þrá sem laðar, brennur sem bál Liggur í leyni – leyndarmál – „Þei, þei“
Í ljósaskiptum fær að sjá Fegurð í frelsi sem þokast nær Þó næturhúmið skelli á Og ósögð orð, hugan þjá – „Þei, þei“
Í dimmum vetri – hækkar sól Bræðir hjartans klakabönd – svo hlý Í dimmum vetri – vorið væna Vermir þitt vænghaf á ný
Skammdegisskuggar sækja að Bærast létt með hverjum andardrættir Syngur í brjósti lítið lag Breiðir úr sér og andvarpar – „Þei, þei“
Í dimmum vetri – hækkar sól Bræðir hjartans klakabönd – svo hlý Í dimmum vetri – vorið væna Vermir þitt vænghaf á ný
Og hún tekst á flug Svífur að hæstu hæðum Og færist nær því Að finna innri ró
Í dimmum vetri – hækkar sól Bræðir hjartans klakabönd – svo hlý Í dimmum vetri – vorið væna Vermir þitt vænghaf á nýTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.