Fallið lauf undir fótum mér Minningin dauf er það sem óttast ég Ég lít höfði er ég hugsa hlýtt um þig
Og líkt og fallið lauf Færist kuldinn um mig
Minning þín stendur eftir hér Er vindur hvín finnst ég heyr'í þér Það er sárt að kveðja elsku hjartans vinur minn En með þungum harm Ég kveð þig um sinn
Ég hugsa' um þig og ég sé Minningar sem elska ég Og sama hvert ég mun fara veit ég Að þú vakir yfir mér Þú vakir yfir mér
Fallið lauf er fokið burt Það þögnina rauf þó svo smátt og þurrt En það mun skilja sporin eftir sig Þegar fellur lauf, Þegar fellur lauf, Þegar fellur lauf sé ég þigTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.