Allt sem er, brennur, fer undan heimsins hörkuéljum. Gæðir sér gammager á hjörtum manna í slíkum heljum.
En eina veit ég vetrarsól sem veitir sálu minni skjól.
Án þín er allt sem gler og framtíðin í kuldabáli. Segðu mér hvernig þér hugnast að hitta mig að máli.
Þá myndi birta í hellinn minn skína æ svo fögur inn.
Eina mey langar grey að finna umfaðmandi arma. Þó mín fley framar ei sigli, aldrei mun það harma.
Því nú mun birta í hellinn minn skína æ svo fögur inn.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.