Ölduslóð, báruljóð, bundin í orðum. Norðurglóð, geislaflóð, gengum við forðum.
Myndirnar svarthvítar og allt sem í þeim býr. Allt sem var og alls staðar er minningin um þig svo skýr.
Myrkur sjór, mjúkur snjór, mættumst í leyni. Stjörnukór, kuldaskór, sátum á steini. Myndirnar svarthvítar og allt sem í þeim býr. Alls staðar og allt sem var er minningin um þig svo skýr. Loforðin týndust eitt og eitt, en draumarnir lifa enn þó allt sé breytt Ölduslóð, báruljóð, bundin í orðum. Norðurglóð, götu hljóð, gengum við forðum.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.