Máttugastur og mestur, myrkasti og versti veraldar dróttinn nálgast nú með ógnarhraða og stormar yfir alla veröld.
Sólin sortnar, himnar brotna, vindar kólna, jarðir fölna, grös öll grána, húðir blána, bein mölvast, sálir glatast.
Nú hefst endirinn, ögurstundin er nú runnin upp. Risinn er ég úr dvala mínum og stíg ég nú fram til að fylgja mínu verki.
Allt verður gjört að engu í eilífðar svartnætti mínu og mun ég sem bylur og stórflóð jafna allt við jörðu og hana síðan gleypa.
Ég hræðist enga djöfla eða engla heldur krjúpa guðir á kné fyrir mér. Ég er verri en allar martraðir manna og skaðlegri en allir harmar heimsins.
Ég hremmi ávöxt jarðar í klær mínar og tæti í sundur skóga hennar og grundir. Já, verk mitt er það hinsta sem heimur þessi mun sjá.
Harmar heimsins harma heiminn. Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa. |
|