Sól án varma Myrkið skín í draumhvolfi innan seilingar og sköpunin tvístrast
Úr grárri þokunni loga skurðgoð fortíðar alelda minnisvarðar morknir og fúnir
Mitt afl gegn allra mætti svo undurlítils gætti Var furða þó mér þætti sem því væri hent á glæ
Fagurt er að líta á ljósgeislum er heim sé ég hverfa á himinásum Vonarstjörnu veikra manna
Skundaði að skýbaki, brotinn maður í moldarfjötrum fram yfir líf lítur Heift míns hjarta hrífi þig á braut Með sárum þú sorgartölum, dapran dauða dregur mér um höfuð Því ótrúan eið hef ég svarið og fús geng helveg að hlið óvinarTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.