Þórunn Auðna, þá hún fæddist þungt var yfir Ísafold Eymd sem allt um lá og læddist loftið sverti, vötn og mold
Myrkur að vori á Melrakkasléttu Meybarn var borið í óþökk og nauð Fátæk og horuð hún fæddist, með réttu Fyrst voru sporin öll hamingjusnauð
Þakkir fær sá er Þórunni sendi þakkir af einingu Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi barnið með meiningu
Þórunn Auðna, þá hún fæddist þeyr blés yfir dal og tún Varla neina vá hún hræddist varin undir galdrarún
Þakkir fær sá er Þórunni sendi þakkir af einingu góðar Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi barnið með meiningu þjóðar
Fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan Fjöllin og gróðurinn tóku að sér ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan læst hennar blóðbönd í örlagakver
Ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi eða hvar hófst hennar ferð Né hvað það var sem götuna greiddi gaf henni bogann og sverð
Þórunn Auðna, þá hún fæddist þa blés von um Íslandsströnd Neistinn fyrir norðan glæddist nytsamleg sú hjálparhönd
Þórunn Auðna, þá hún fæddist þustu vár um lönd Vigaklæðum vösk hún klæddist vættir treystu bönd
Bjargvættur okkar enn barnung að aldri borin á Melrakkasléttu Vorið sem Þórunn er valin, of Baldri verndari Íslands með réttuTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.