tregi ég tala en þegi að nóttu og degi — ég vart festi blund
og hún opnar í hjarta mér gáttir verður þess valdandi að maður missir áttir hún er ókunn mér sú tilhneiging þetta er ólýsanleg tilfinning
straumur öflugur flaumur minn stóri draumur — fundin mín fjöl
gjafir líkt og mér hafi tekist úr kafi — að komast á kjöl
og hún opnar í hjarta mér gáttir verður þess valdandi að maður missir áttir og hún vekur í huganum neista lyftir mér upp án þess að hafa hugmynd um það
hún er ókunn mér sú tilhneiging harla ólíkt því sem var þetta er undursamleg tilfinning
ef þú brosir nú við mér mun ég margfallt launa þér viltu brosa sól við mér? ég mun endurgjalda þér
brostu sól, brostu sól
ef þú brosir nú við mér
viltu sól, viltu brosa? ég mun endurgjalda þér (endurgjalda þér)Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.