Hugans djúpin hyldjúpa líf í kuldanum sefur um ókomna tíð Hefst nú förin Skuggarnir teyma Yfir móðuna miklu Inn í hulda heima
Stjörnurnar þar svífa í skýjunum þungum og sökkva í myrkri frá gjótum og sprungum
Vindurinn þar leikur við jörðina strýkur en undir, þar kraumar og úr henni ríkur Berjast í sárunum mosinn grænn og lyngin í grámánabirtu við sjóndeildarhringinn
Fjöll, holt og hóla í húminu fann bak við mín augnlok og hjartað þar brann Staður sem slíkur má sorgina geyma en hvert sem ég rata þá á ég þar heimaTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.