komdu nær minn kæri sleiktu mig með orðum þínum reyktu mig með augum þínum grænum daufum
ég finn lykt líkama þíns leyfðu henni að fylla mig alla og meira
hvert ferðu þegar nóttin kemur kyssir þú móður þína góða nótt
þú segir góða nótt við mig á kvöldin, þegar við erum saman en þegar sólin rís ert þú blindur
ég veit að nóttin fer mer vel en hugsar þú til mín tek ég mikið pláss?
lúmskur ertu andskoti leikur að lyfjum og leyfir mér leikinn hratt og bítandi bítur gleðin mig og gufar svo upp eins og reykur
nú er nóg komið, minn kæri ég elskaði þig ekki þótt þú þættist þekkja mig þótt þú þættist elska mig eins og svo oft var ég að blekkja þig
segðu mér sannleikann, siðlausi skratti förum til fjandans en gerum það samanTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.