Ég var eitt sinn barn, alveg eins og þið en myrkrið gleypti mig alla, lét mig falla í nýstingskalt tómið, fraus, en nú er ég laus.
Ég er rödd sem var bæld niður í hundruði ára, af kuldanum kvödd í holdgervi tára kökkul í háls, en nú er ég frjáls og ég frýs ykkar brothættu sálir, er ég rís upp úr öldunum, hál eins og ís, brjáluð og brýst út í brimkenndan dans, ég er ekki hans.
Ég er Kælan Mikla Komin á kreik, í kvikyndisleik, gerð til að kvelja, meðal manna dvelja er ég frysti, rist´ykkur á hol
og mála bjarta veröld ykkar svarta. Ég er kveðskapur brotinna hjarta.
Ég er Kælan MiklaTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.