Hvernig gátu hunangsgylltar hlíðarnar og bjargvættar bláminn í björgunum skyndilega skotist á brott. Skelfingar skugginn er kuldalegur, vorið var vonbrigði og sumarið þrældómur vetrarins.
Ég er volandi vændiskona, veggja sem hindra mína gleði og glæstu framtíðar drauma. Ég man þegar ég speglaðist í gullslegnu vatni og sá sjálfa mig brosa.
Svanurinn sem kenndi mér forðum að fljúga er nú farinn, floginn á brott. Og ég sit hérna eftir, alveg vængjalaus og velti því fyrir mér hvort ég fái nokkurn tíma aftur að fljúga.
Ég festi mig við arfa í garðinum. Hjartað mitt er að springa. Skelfingar skjálfti í líkama mínum ríkir og reiðin er óflýjandi.
Líkami minn er ólgusjór og ég vona að þið drukknið öll með mér Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur og lungun mín fyllast af vatni.
Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín, svo ég fái kannski að hitta þig aftur.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.