X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið. X! Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla X! Mógúla og svikahrappa. Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það.
– Þú horfðir á mig deyja.
á deyja. á deyja.
Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi. Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika. Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna.
– Þú horfðir á mig deyja. á deyja.
– Þú horfðir á mig deyja. á deyja. á deyja.
Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans. Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans. Hann krýpur á hnjánum. Holskeflan er gröf. Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna. Dreyri vellur – hann fellur í valinn.
– Þú horfðir á mig deyja.
– Þú horfðir á mig deyja. á deyja. á deyja. á deyja.
– Þú horfðir á mig deyja.
– Þú horfðir á mig deyja.
– Þú horfðir á mig deyja.
– Þú horfðir á mig deyja.
X!Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.