Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu. Þau safnast saman á haugum brostinna drauma. Þú lítur til baka og hugsar: Afhverju seldi ég mig – ekki fyrir meira?
Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta. Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka. Þú lítur til baka og hugsar: Afhverju seldi ég mig –
Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst. Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka. Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo að enginn kærir sig um minningu þína. Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku.
Ég fel mig undir laki sem kuldinn hefur þakið. Nóttin starir þögul hún segir lygasögur. Tómið svífur að mér berleggjaður berst ég. Banasæng ég bý mér. Banasæng ég bý mér.
Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu. Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma. Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir: Afhverju seldi ég mig – ekki fyrir meira?Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.