við erum hatari! við erum öll hatari! við erum varan og neytandinn! við erum múrverkið og mótmælin! við erum glæpurinn og böðullinn! við erum bastillan og við erum byltingin!
þrælar! gengilbeinur ræningja! sníkjudýr brauðmylsna! tannlausu kjölturakkar! blindingjar og aumingjar! neytendur og klámhundar! grindhoruðu betlarar! marklausu peð! leiksoppar hrægamma! (höh!) úrhrök! sameinist, ómagar, bak í bak og dansið!
ómagar…
dansið, eða lútið oki kúgarans!
(kúgarans, kúgarans, kúgarans…)
það er núna eða aldrei! dansið eða deyið!
dansið eða…
varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans!
steypið af stóli þrælapískaranum og látið hann súpa… …eigið meðal! sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar!
sameinist, ómagar, bak í bak og dansið! dansið eða lútið oki kúgarans!
kúgarans... kúgarans... kúgarans…
það er núna eða aldrei! dansið eða deyið!
mín f-gra, kæra vertu hjá mér þegar allt mun brenna fylgi þér hvert sem er við munum saman líta hug minn klofna á enda veraldar fylgi þér hvert sem er mín f-gra, kæra vertu hjá mér þegar allt mun brenna fylgi þér hvert sem er mín f-gra kæra vertu hjá mér þegar allt mun brenna fylgi þér hvert sem er…Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.