Kveikur að morgunvirkjum berst Kippir undan sólskinsábreiðum Endurtekið niðurbrot, hold fyrir bý Endurtekið niðurbrot, skolpleiðslur bresta í söng
Fórnarlamb eigin tilvistar, hið aumasta dýr Sjónin beinist engu öðru að í varma sjálfskaparvítis
Veggina skal skallað Sefjun blóma sem sjá enga sól í síki sínu Meinsemdarþrælar
Sjálfinu skal hallað yfir strauma tímalínunnar sem stoppar aðeins fyrir þeim sem frá henni hverfa
Bræði springur yfir áætlanir sem aldrei ágerðust Íþyngir skugganum, hamur sem öðlast eigið líf og eltir hvert sem haldið er miskunnarlaust sem ævarandi áminning fyrir hvað maður varTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.