Tíminn flýgur og flýgur Líður og lýgur að honum sem að bíður Gott að elska friðinn en tapa ekki stríðum
Berjast með kjafti og klóm og sofna ekki í skýjum Ég kveiki á kerti, því það róar allt Og kveiki í sígarettu í kertinu og slátra einum sjóara Ég er ævintýrasinni, prófa allt Ég chilla í trjánum, ég er kóala Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Og þó ég hafi fengið rauða spjaldið, nokkrar áminningar Kem ég alltaf aftur inn þekki dómarann Ég kanna landið utan hjólfara Ég hef það fínt en vill það grófara Ég ætla viðurkenna eitt að ég óttast það að missa veldið alveg frá mér svo ég spíti í lófana
Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Þú veist hver prísinn er, enginn afsláttur hér Þú skalt borga uppsett verð ef þú vilt bóka það Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Þú veist hver prísinn er, enginn afsláttur hér Þú skalt borga uppsett verð ef þú vilt bóka það
Ég lifi í núinu og núið er dýrt Er að vinna, harka alla þó það looki svo frí Keyri mig út, fastur í fimmta gír Vaka lengi, sef til hádegis og læt eins og fífl Ég er samt fínn gaur, skil það alveg ef þú vilt hata Ég er svo hreinskilinn, er allavega ekki að plata Stressið kemur og ég fæ mér aðeins af vondum vana Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég þarf að bremsa, ég þarf að hægja á mér En háður félagskapnum, hringi í þær og gera flóknara Hengjum gamla kónga, finnum nýja og krýnum Hengi þá á hálsinum í úreltum línum Sagan gleymir flestum, já við eldumst og týnumst og þó ég drepist þá lifir partýið í lögunum mínum
Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Þú veist hver prísinn er, enginn afsláttur hér Þú skalt borga uppsett verð ef þú vilt bóka það Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Þú veist hver prísinn er, enginn afsláttur hér Þú skalt borga uppsett verð ef þú vilt bóka það
Hey yo þú, ég legg til að við kyssumst Og förum síðan heim yo og leikum með byssur Ég geri engar skyssur, nei ég geri allt með vissu Meira að segja þegar börnin mín leika með byssur Ég kemst í fíling þegar ég heyri þetta Ég er rap game mothafuckin Egill Helga Og allt sem er fallegt þarf að eyðileggja Því mínar línur eru ekkert nema spegilsléttar Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Ég er alltof busy, hringdu í bókarann Og ef það er á tali þá skaltu hringja aftur Því seðlarnir þeir verða að fara í skókassann Ég hef verið skakkur síðan ég hætti að rappa Lét renna af mér smá þegar ég heyrði að ég ætti krakka Ég grætti kappa og þannig séð dó hann Ég er upptekinn eins og VHS spóla Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa. |
|