i.i. Kyrrð rofin drungi aldanna leggst yfir mig
ii. Neðar undirheimum er uppsprettan er endirinn
iii. Nágríman fellur ég hníg niður örmagna en ég eygi í fjarska náttröðul
iv. Blindandi tóm
v. Það teygir sig óendanlega hvert sem ég lít gnæfir það drottnar yfir djúpinu
vi. Svarta hliðið Ég lýk því upp
vii. Gin dýrsins gleypir mig ærir mig
viii. Eiturgufur svíða burt kvikasilfurslogar hreinsa
ix. Auðir salir rykfallnir innantómt bergmál ómar
x. Löng steinborð útbúin skorpnuðum skrokkum hver bikar tómur hvert sæti autt
xi. Heyrirðu nú? nístandi surg sem sker inn að beini inn að kviku
xii. Er orðið að öskri öskri sem nötrar rauð elding klýfur
xiii. Berstrípaður af klyfjum jarðar sækja á mig endurminningar
xiv. Hlautsteinninn bíður þyrstir litaður af fornum blótum
xv. Biturt bragð er af eigin blaði Funagögull flæðir
xvi. Úr steininum streyma svartir vessar Þeir blæða aftur inn í mig
xvii. Svartnættið er líf mitt Hyldýpið er sál mín Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa. |
|