Handan mennskrar heimsbyggðar leynast jökulkaldir myrkheimar þar sem vargshjörðin sveimar og niðjar nifls ríkja
Hvít auðnin er ríki vort! Snjóstormurinn skikkja og skjól Sverð okkar kalið skjöldurinn tunglið og sól
Öræfi eymdar eru óðal niflættar Aðeins feigð og fönn fyrirfinnst í ríki vor feðra!
Við, afsprengi Niflheims! Drottnarar norðursins! Synir stríðs og ísa dætur hríms og nætur
Blindbylurinn geisar þér sortnar fyrir augum hjarnið sest að og hagall dynur
Sortahríðin geisar og úlfar góla Á firnindum knýr feigðin dyra
Við, afsprengi Niflheims! Drottnarar norðursins! Synir stríðs og ísa dætur hríms og nætur
Úr kaldri auðninni streyma stríðsmenn á úlfsbaki Við erum hungur og frost! Hinn eilífi vetur
Ykkur er engin vorkunn vesæl peð Ásgarðs Gegn risum og hrímþursum fölnar hjarta og frosnar!
Skriðjöklar renna fram ís mun aldrei þiðna Myrkrið mikla mun upp renna
Nálgast nú loks hinn eilífi vetur og við höldum til Múspells Vígavargar góla og stormurinn þráir heitt - blóð
Vomar veturs út ríða og vindurinn nauðar Niðjar niflsins stríða og vindurinn nauðar
Afsprengi Niflheims kalið hungur og frost Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa. |
|