Augu sem ekkert sjá Þau eru svo full af þrá Stundum er styrkur þinn Stoltið sem vel ég finn
Augun þín eru blá Iðandi til og frá Fullkominn friðurinn Flæðir um huga minn
Stundum eru þau alveg tóm Eins og þau hafi hlotið dóm Lífið er lag sem alltaf ómar Um yndisleg blóm, já
Augun þín, augun mín Ást þín frá þeim skín Lífið blessar börnin sín, oh já, oh já Líf sem dó en lifir þó Ég lifi bara fyrir þig Augun þín elta mig, já, já
Hjartað er blítt og heitt Hjartað fær öllu breytt Við viljum hið sanna sjá Sama hvað gengur á
Viskan er vonin þín Veitir þér nýja sýn Örlögin elta þig Og augu þín heilla mig
Augun eru þar Og þau veita svar Allt sem áður var Og allar lífsins minningar Vonin vekur þrá Víst vil ég þá að þú sjáir, sjáir
Stundum eru þau alveg tóm Eeins og þau hafi hlotið dóm Lífið er lag sem alltaf ómar Um yndisleg blóm, já
Augun þín, augun mín Ást þín frá þeim skín Lífið blessar börnin sín, oh já, oh já Líf sem dó en lifir þó Ég lifi bara fyrir þig Augun þín elta mig, já, já
Held mér fast í fagra mynd Er finn að ég er augna þinna lind Held mér fast í fagra mynd Því fögur sál er ekki blind
Augun þín, augun mín Ást þín frá þeim skín Lífið blessar börnin sín, oh já, oh já Líf sem dó en lifir þó Ég lifi bara fyrir þig Augun þín elta mig, já, já
Augun þín elta mig Augun þín elta mig Augun þín elta mig, já, jáTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.