Pabbi minn kallakókið sýpur hann er með eyrnalokk og strýpur og er að fara á ball, hann er að fara á ball.
Mamma beyglar alltað munninn þegar hún maskarar augun og er að fara á ball, hún er að fara á ball.
Blandaðu mér í glas segir hún út um neðra munnvikið. Ekki mikið kók, ekki mikinn ís, réttu mér kveikjarann. Barnapían er með blásið hár og pabbi yngist upp um átján ár á nóinu. Drífðu þig nú svo við missum ekki af Gunnari og sjóinu.
Pabbi minn setur Stóns á fóninn fæst ekki um gömlu partýtjónin, hann er að fara á ball, hann er að fara á ball.
Nú skal honkí tonkið spilað þó svo að mónóið sé bilað, hann er að fara á ball, hann er að fara á ball.
Manstu eftir Jan og Kjell, segir hann eftir gítarsólóið. Manstu eftir John, manstu eftir Paul, réttu mér albúmið. Þá var pabbi sko með heví hár en síðan hafa liðið hundrað ár á nóinu. Drífðu þig nú svo við missum ekki af matnum og sjóinu
Það er alltaf sama stressið sú gamla er enn að víkka dressið og er að fara á ball, hún er að fara á ball.
Blandaðu mér í glas segir hún út um neðra munnvikið. Ekki mikið kók, ekki mikinn ís, réttu mér kveikjarann. Barnapían er með blásið hár og pabbi yngist upp um átján ár á nóinu. Drífðu þig nú svo við missum ekki af Gunnari og sjóinu.
Mamma beyglar alltaf munninn Þegar hún maskarar augun og er að fara á ball hún er að fara á ball.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.