Katalog:  A   B   C   D   E   F   G   H   I   J   K   L   M   N   O   P   Q   R   S   T   U   V   W   X   Y   Z   0   1   2   3   4   5   6   7   8   9 

B / Bashar Murad / Vestrið villt


Er enn á ferðinni
á sömu bylgjunni
Veit ei hvert skal haldið
í leit að hamingjunni

Er grjót sem veltur fram
get aldrei staðið kyrr
Þegar þú verður bitur og vilt gera betur
þarf að breyta til

Hendi mér upp á veginn
svo syng ég þína skál
Tómar hendur, tómir vasar
en í hjarta mínu brennur bál

Ótaminn villingur
allt frá því ‘93
og mig skortir allt fé – ég sver það breytist nú

(Því ég) ætla að fara í vestrið villt,
þar sem illt og spillt
Er besta fólkið
Og þó ég geri mjög gott mót
Fari fót fyrir fót
Er ég aldrei hólpinn

Ég ætla að fara í vestrið villt,
Þar sem mild og tryllt
Eru kaup og skipti
Ég segi já, ekkert mál, að veði legg mína sál
Svo er bara að taka sénsinn

Ég er enn á ferðinni
ekki kominn langt á veg
Ég glamra á gítarinn, með leðurstígvélin,
og slóð í sandinn dreg
Klæddur fyrir hlutverkið, vona að þið hrífist með
Tók mig þrjátíu ár að átta mig á – að vera bara ég


Ætla að fara í vestrið villt,
þar sem illt og spillt
Er besta fólkið
Og þó ég geri mjög gott mót
Fari fót fyrir fót
Er ég aldrei hólpinn

Ætla að fara í vestrið villt,
Þar sem mild og tryllt
Eru kaup og skipti
Ég segi já, ekkert mál, að veði legg mína sál
Svo er bara að taka sénsinn

Ég er bara að taka sénsinn

Velkomin í vestrið villt…
Velkomin í vestrið villt,
Velkomin í vestrið villt,
Þú færð einn séns
til að hamra járnið
Þarna er það – tækifærið

(Því ég) Ætla að fara í vestrið villt,
þar sem illt og spillt
Er besta fólkið
Og þó ég geri mjög gott mót
Fari fót fyrir fót
Er ég aldrei hólpinn

Ætla að fara í vestrið villt,
Þar sem mild og tryllt
Eru kaup og skipti
Ég segi já, ekkert mál, að veði legg mína sál
Svo er bara að taka sénsinn
Ég er bara að taka sénsinn

Velkomin í vestrið villt.
Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.
Szukaj MP3
·
· Konwertuj video do MP3
· Konwertuj video do MP4

Nowe Teledyski
 · Sabrina Carpenter - Please Please Please
 · Ariana Grande - The Boy Is Mine
 · Billie Eilish - Chihiro
 · Kizo, Bletka - Na Brzegu
 · Popek - 2024 Lato
 · Eminem - Houdini
 · Topky - Kto Wkurzy Cię Jak Ja
 · Kubańczyk - Bukiet Róż
 · Oskar Cyms - Cały Czas
 · Skolim, Divix, Hellfield - Bebecita
 · Bayera - Zakochać Się
 · Dedis - Zagubione Dziecko
 · TKM - Queen
 · Daj To Głośniej - Pilnie Oddam Gruz
 · Kubi Producent Ft. Szpaku, Tulia - Pusty Pokój, Ale Płyty Diamentowe
 · Alan Walker, Kylie Cantrall - Unsure
 · Modelki - Hifi (7 Bieg)
 · Doda, Smolasty - Nie Żałuję
 · Defis - Tylko Dla Takiej
 · Billie Eilish - Lunch

Wszelkie prawa zastrzeżone. Powered by © 2004-2024 Teledyski.info || Polityka cookies || Darmowe Mp3 || Zgłoś błąd

[ darmowe teledyski do oglądania ]