Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Sem hefur atvinnu?
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Sem er reglusamur Og er í stúku?
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Hann á íbúð og bíl?
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Sem er fráskilinn Og safnar þjóðbúningadúkkum.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Svar óskast sent Merkt einkamál.
Spegillinn sagði ekki ég Og þögnin sagði ekki ég Og myrkrið sagði ekki ég Og mennirnir svöruðu ekki neinu.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Og von hans?
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann Og von hans um lítið afdrep Í sólarkytru einhvers annars?
Spegillinn sagði ekki ég Og þögnin sagði ekki ég Og myrkrið sagði ekki ég Og mennirnir svöruðu ekki neinuTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.