Gegnum holt og hæðir Horfi ég og sé, Það sem var í þátíð, Það sem á að ske.
Ég sé í gegnum sortann, Ég se svo vel í gegn, Ég veit ei neitt um veginn, Mér verður það um megn.
Ég heyri horfnar raddir, Hvísla fornan seið, Ég geng í gegnum veggi, Mér gefst ekki önnur leið.
Að eiga svör við öllu, En ekki neina spurn, Að eiga blóma í eggi En ekki neina skurn.
Ég heyri horfnar raddir, Hvísla fornan seið, Ég geng í gegnum veggi, Mér gefst ekki önnur leið.
Og því er ekki auðvelt, Að eiga þessi völd, Að skynja hvað er handan Við heimsins gluggatjöld.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.