Ykkur vil ég óska góðs, Ekki er mér það bannað; Eftir staupa fylli flóðs Farið þið hvort á annað.
Brúðhjónunum óska ég Að þau éti vel smér, Fiskinn með feiknum rífi, Flotinu ekki hlífi, Ketið með kappi snæði Kvikindishjónin bæði.
Brúðhjónanna bolli Berst að höndum mér, Í tískunni ég tolli Og tala svo sem ber: Ávaxtist sem önd í mó Eða grásleppa í sjó, Hér á enda hnoða ég ró Haldið þið piltar við.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.