Fuglinn minn úr fjarska ber Fögnuð vorsins handa mér. Yfir höfin ægi-breið Ævinlega – flýgur rétta leið.
Tyllir sér á græna grein Gott að hvíla lúin bein Ómar söngur hjartahlýr Hlusta ég á – lífsins ævintýr.
Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna
Þegar haustar aftur að Af einlægni ég bið um það Að mega syngja sönginn þinn Sumargestur – litli fuglinn minn.
Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna
Þú átt athvarf innst í sál Ó að ég kynni fuglamál Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.