Við brekkurætur litla lindin leitar upp að fylla kerið Á sér jöfnum hita heldur hennar mildi þessu veldur
Dúðuð er í dýjamosa Deigan, mjúkan, ferskan, grænan einangruð frá illum mætti Eitri, græðgi og sóðahætti
Ein og bláeygð fjalladís í hörkugaddi ekki frýs
Ljómar vatnið líknarandi lifandi er brunnur þessi Þegar einhvern þorstinn plagar þegar strembnir gerast dagar þar er svölun alltaf vís
Dúðuð er í dýjamosa Deigan, mjúkan, ferskan, grænan einangruð frá illum mætti Eitri, græðgi og sóðahætti
Ein og bláeygð fjalladís í hörkugaddi ekki frýs
Ljómar vatnið líknarandi lifandi er brunnur þessi Þegar einhvern þorstinn plagar þegar strembnir gerast dagar þar er svölun alltaf vísTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.