Um holótta grýtta götu þú gengur með staf þér í hönd og sérð það er bátur að berjast við brimið nærri strönd Þú sérð það er bátur að berjast sú barátta fer ekki vel Þar velkist í válegu róti lítil, veikbyggð skel Nú hanga skýin henglum í hafið vekur þungan gný og himininn er grár í dag Þér þykir svo vont að vita af vinum í sárri neyð og geta ekki veitt þeim vonir og vísað færa leið En líta skal lengur á málin og ljóst virðist mér það nú að brimið er barningur lífsins og báturinn hann er þú Nú hanga skýin henglum í hafið vekur þungan gný og himininn er grár í dagTeksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.