Land míns föður, landið mitt laugað bláum straumi eilíft vakir auglit þitt ofar tímans glaumi. þetta auglit elskum vér, - Ævi vora á jörðu hér brot af þínu bergi er, blik af þínum draumi.
Hvort sem krýnist þessi þjóð þyrnum eða rósum hennar sögur, hennar ljóð, hennar líf vér kjósum. Ein á hörpu ísa og báls aldaslag síns guðamáls æ hún leiki ung og frjáls undir norður ljósum.Teksty umieszczone na naszej stronie są własnością wytwórni, wykonawców, osób mających do nich prawa.